aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Virðulegi forseti. Ég fæ kannski að byrja á lokapunkti hv. þingmanns. Auðvitað ætti það að vera þannig að það sé fjöldi fólks með þörf fyrir þjónustu sem stjórni fjölda samninga, að það sé útgangspunkturinn, en ekki að það liggi fyrir að gera eigi tiltekinn fjölda samninga og síðan eigi að fara að raða í forgangsröð eftir fjölda samninganna. Útgangspunkturinn hlýtur að vera sú þjónusta sem fólk þarfnast. Af því að þingmaðurinn nefndi að fólk hugsi auðvitað ekki til þess hversu stór sneiðin er sem sveitarfélagið greiðir til móts við ríkið, þetta sé spurning um þjónustuna, þá er mér alltaf minnisstætt að hafa um skamma hríð verið starfandi í félagsmálaráðuneytinu, sem þá var í sambúð við heilbrigðisráðuneytið, tvö ráðuneyti í sama húsi. Þar var orðið til ágætis læsi á það að sparnaður í einni álmunni leiddi nánast alltaf til hækkunar á útgjöldum í hinni álmunni, að heilbrigðismálin og velferðarmálin haldast þannig í hendur. Ég held að ríki og sveitarfélög ættu að taka það til sín að reyna að bæta þar úr svo að samtalið geti orðið þannig að það sé sameiginlegt verkefni. Annað væri synd og skömm.
Að því sögðu þá hef ég mikla samúð með sveitarfélögunum. Við sjáum birtingarmyndirnar gagnvart þeim sem eru fámenn, þau fá í fangið verkefni sem þau hafa ekki burði til að sinna. En svo sjáum við á sama tíma klæðskerasniðnar reglur t.d. varðandi jöfnunarsjóðinn. Reykjavík er þar í þeim sporum að vera með helming, að ég held, allra barna af erlendum uppruna en reglan er sú að öll sveitarfélög geti sótt stuðning í sjóðinn önnur en þau sem eru fjölmennari en 70.000 manns, sem er eitt sveitarfélag á landinu.