152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[23:31]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Það slær mig alltaf við þessi lög hvað hið opinbera hefur ítrekað og lengi leyft sér að draga lappirnar. Lögin voru samþykkt 2018. Það átti að endurskoða þau þremur árum síðar til þess m.a. að útvíkka þjónustuna. En enn erum við ekki einu sinni komin upp á topp innleiðingarinnar eins og gert var ráð fyrir í bráðabirgðaákvæði. Við erum í raun á þeim slóðum sem við hefðum átt að vera milli áranna 2018 og 2019. Ég er ekki viss um að hvaða hópi sem er yrði boðið upp á slíkan þjónustuhalla. Ég deili því með hv. þingmanni að skilja vel stöðu sveitarfélaganna sem þurfa oft að leggja út í mjög mikinn kostnað miðað við stærð í einum NPA-samningi. En það ætti ekki að vera vandamál fyrir sveitarfélagið og það ætti svo sannarlega ekki að vera vandamál fyrir einstaklinginn sem þarf á þjónustunni að halda. Það er náttúrlega það sem við lendum alltaf í, þegar þessir ímynduðu múrar á milli þessara tveggja arma hins opinbera valda þjónustuskerðingu til almennings, að það kemur niður á þeim sem síst skyldi.

Ég og hv. þingmaður sitjum saman í umhverfis- og samgöngunefnd og þar höfum við verið að ræða hversu mikil klikkun það sé í orkukerfinu að þar sé framboðið algerlega eftirspurnardrifið; ef einhver kemur og segist vilja reisa bitcoin-ver þá eigi bara að redda þeirri orku. (Forseti hringir.) En hér er búið að setja upp þveröfuga mynd. Hér er eftirspurnin framboðsdrifin, eins og fólk geti valið hvort það hafi miklar stuðningsþarfir eða ekki.