152. löggjafarþing — 64. fundur,  7. apr. 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[23:33]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta er áhugavert samhengi hjá hv. þingmanni, að nálgunin sé þessi, þegar þetta er sett í samhengi við fundinn sem við sátum síðast í morgun, í samhengi við orkumálin. Ég vildi kannski ljúka máli mínu á því að segja að við erum enn í þessum bútasaumi. Ég styð það frumvarp sem hér er fram komið, það skref sem verið er að stíga. Með því að okkur myndi takast að lögfesta samninginn værum við ósjálfrátt komin í þá stöðu að verða einfaldlega að stíga fastar til jarðar en nú er. Við kæmumst út úr þeim sporum sem við erum föst í og höfum því miður verið í mörg ár. Við vitum að áður en NPA varð að lögum voru þess dæmi að fólk hafði beðið árum saman eftir því að fá þjónustu sem ekki einungis bætti lífsgæði heldur var grundvallaratriði varðandi það að geta lifað eðlilegu lífi.