152. löggjafarþing — 65. fundur,  8. apr. 2022.

störf þingsins.

[10:37]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Hagsmunasamtök heimilanna, og ég sem formaður þeirra, hafa mótmælt sölu Íslandsbanka og Arion banka þar á undan síðan fyrirætlanir um sölu bankanna komust fyrst á dagskrá. Ég er því ekki að hoppa á þennan vagn núna eftir fíaskó síðustu vikna. Það er sorglegt að sjá að áhyggjur mínar og Hagsmunasamtaka heimilanna hafa raungerst og rúmlega það. Þegar ég sá listann yfir kaupendur leið mér eins og það hefði verið sparkað í magann á mér. Útrásarvíkingarnir eru mættir aftur og boðnir velkomnir án nokkurs tillits til fórnarlamba þeirra. Þessir menn byggðu risastóra spilaborg og þegar hún hrundi komu þeir sér í burt til London og Lúxemborgar en létu saklaust fólk taka á sig skellinn. Að minnsta kosti 15.000 fjölskyldur misstu heimili sín vegna þeirra gjörða. Víkingarnir misstu hins vegar ekki neitt nema náttúrlega persónulega ábyrgð á skuldum sínum. Allir héldu þeir heimilum sínum og hafa lifað í vellystingum alla tíð síðan. Þeir áttu peninga þegar ferðamennskan fór af stað og stórgræddu á hótel- og íbúðabraski. Íslandsbanki, sem núna er svo verðmætur, byggir fjárhag sinn á lánasöfnum sem hann fékk á hrakvirði en innheimti af hörku alveg upp í topp. Þar var enga miskunn að finna frekar en hjá hinum bönkunum. Þeir ryksuguðu upp heimili fólks sem hafði það eitt sér til saka unnið að taka húsnæðislán. Þetta var heiðarlegt fólk sem hafði ekki hugmyndaflug til að ehf-a heimili sín eða taka tugmilljóna króna kúlulán fyrir hlutabréfum í eigin félögum eða bankanum sem lánaði þeim. Fólkið fékk ekki afskriftir og ætlaðist aldrei til þess. Það fór bara fram á einhverja smá sanngirni en hana var hvergi að finna. Ofbeldinu gegn þessum heimilum hefur ítrekað verið afneitað og ekki hvarflað að neinum að bæta þeim skaðann. Og nú eru útrásarvíkingarnir mættir aftur en fórnarlömb þeirra eru gleymd. Í staðinn lútum við í gras fyrir peningunum og bjóðum skaðvaldana velkomna aftur í gegnum lokað söluferli. Ég hef megnustu skömm á þessu. Guð blessi Ísland.