152. löggjafarþing — 65. fundur,  8. apr. 2022.

störf þingsins.

[10:39]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. „Samkvæmt 65. gr. stjórnarskrárinnar skulu allir vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti. Í því felst að við framkvæmd laga nr. 99/2007 verða hlutlægar og málefnalegar ástæður að liggja til grundvallar mismunandi greiðslum til bótaþega. Þar sem tekjuviðmið lágmarksframfærslu í 2. mgr. 9. gr. laganna er afdráttarlaust og tilgangur ákvæðisins, í samræmi við 1. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar, er að tryggja þeim lífeyrisþegum sem búsettir eru hér á landi sérstaka uppbót á lífeyri, geti þeir ekki framfleytt sér hér á landi án hennar, verður ekki talið hlutlægt og málefnalegt sjónarmið að lækka þá greiðslu vegna þess að viðkomandi hafi áður búið erlendis um tíma. Með því að framkvæmd áfrýjanda á greiðslum til stefndu fól þannig í sér mismunun á grundvelli búsetu í skilningi 65. gr. stjórnarskrárinnar verður sú lækkun sérstakrar uppbótar sem stefnda sætti ekki réttlætt með því að ákvæði 2. mgr. 9. gr. sé heimildarákvæði.

Að öllu virtu sem að framan er rakið ber að staðfesta niðurstöðu hins áfrýjaða dóms.“ — Hæstiréttur Íslands.

Það er veikt fólk. Það er fólk sem verst stendur. Það er verið að níðast á þeim sem minnst hafa, búa við sárafátækt, og það var bara verið að fara fram á að þeir kæmust úr sárafátækt í fátækt. Vill einhver reyna að tóra á 100.000 kr. á mánuði eða 160.000 kr. eða á því sem verið er að fara fram á, hinar 212.000 kr. á mánuði? Skammist ykkar því að ykkar er skömmin sem stjórnið ríkisfjármálunum, því að þið voruð of upptekin af því að selja banka á afslætti til útvalinna auðmanna á sama tíma og sú sem höfðaði málið lifði ekki af að sjá dóminn felldan í Hæstarétti. Umboðsmaður Alþingis, héraðsdómur, Landsréttur og Hæstiréttur. En ríkisstjórn, ykkar er skömmin.