152. löggjafarþing — 65. fundur,  8. apr. 2022.

störf þingsins.

[10:43]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Í gær ræddum við breytingu á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum sem fjallar um vinnutíma starfsmanna sem veita notendastýrða persónulega aðstoð eða NPA eins og það er kallað. Notendastýrð persónuleg aðstoð er þjónustuform sem byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og gerir fötluðu fólki kleift að ráða því hvar það býr og með hverjum það býr. Fatlað fólk stýrir því hvernig aðstoðin er skipulögð, hvað aðstoð er veitt við, hvenær hún fer fram, hvar hún fer fram og hver veitir hana. Markmið NPA er að fatlað fólk geti lifað sjálfstæðu lífi og hafi sömu möguleika og ófatlað fólk, einnig að fatlaðir einstaklingar hafi hámarksstjórn á því að móta eigin lífsstíl. Því miður hefur fjöldi NPA-samninga ekki orðið sá sem vænst var og staðan í dag er sú að einungis hafa verið gerðir 90 slíkir samningar en þeir ættu að vera um 170. Kostnaðarskipting þessara samninga hefur verið þannig að ríkinu ber að greiða fjórðung en sveitarfélögin bera 75% af kostnaði. Það þarf ekkert að fara í grafgötur með það að slíkir samningar geta verið dýrir þar sem þjónustuþörf margra einstaklinga er mikil en því miður gerir ríkið ekki ráð fyrir þeim fjármunum sem setja þarf í þetta úrræði og skilur sveitarfélögin eftir á köldum klaka með fjármögnunina. Það getur ekki gengið, virðulegur forseti, að margir fatlaðir einstaklingar skuli bara vera settir á biðlista. Það á að vera skýlaus krafa að samningar milli ríkis og sveitarfélaga taki á þessu til langrar framtíðar. Við skuldum fötluðu fólki það.