störf þingsins.
Virðulegur forseti. Nýlega voru veittir styrkir í fyrsta sinn úr Aski, mannvirkjarannsóknasjóði. Alls var 95 milljónum úthlutað til 23 nýsköpunar- og rannsóknarverkefna á sviði mannvirkjagerðar. Styrkirnir eru veittir til að auka þekkingu og efla nýsköpun og mæta samfélagslegum áskorunum á sviði mannvirkjagerðar. Mannvirkjarannsóknasjóðurinn Askur er fjármagnaður af innviðaráðuneytinu og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu, en umsýsla hans er í höndum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Sjóðurinn var stofnaður í fyrra en umsóknarfrestur fyrir fyrstu úthlutun rann út þann 9. desember síðastliðinn. 40 umsóknir bárust, samtals að upphæð 452 millj. kr. Sérstakt fagráð var skipað til að meta umsóknir og gera tillögu um úthlutun til innviðaráðherra sem veitir styrkina samkvæmt reglum sjóðsins.
Þetta er mjög mikilvægt verkefni, virðulegur forseti, þar sem það er í allra þágu og um leið þjóðfélagslega hagkvæmt og mikilvægt að efla rannsóknir og nýsköpun á sviði mannvirkjagerðar. Nauðsynlegt er að efla íslenskt hugvit á þessu sviði og fá fram hugmyndir um notkun íslenskra hráefna í byggingariðnaði en þar má nefna sandinn okkar, hampinn og skógana. Jafn mikilvægt er að leita leiða til að draga úr kolefnisspori mannvirkja og draga úr notkun óumhverfisvænna byggingarefna líkt og hæstv. innviðaráðherra hefur ítrekað sagt. Byggingariðnaðurinn er talinn bera ábyrgð á um 40% af allri losun á heimsvísu og getur hann spilað stórt hlutverk einn og sér í að taka á framtíðaráskorunum tengdum loftslagsmálum. Að því sögðu er það mjög ánægjulegt að áherslur sjóðsins í úthlutuninni hafi snúið að þeim samfélagslegu áskorunum sem við höfum staðið frammi fyrir í byggingariðnaði, svo sem rakaskemmdum í mannvirkjum og aðgerðum til lækkunar kolefnisspors.