störf þingsins.
Forseti. Það er mjög afhjúpandi að fylgjast með viðbrögðum hæstv. fjármálaráðherra við gagnrýni sem fram hefur komið vegna sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Honum finnst ekkert athugavert við það að hlutafélög í eigu Benedikts Sveinssonar, föður fjármálaráðherra, og Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja, sem er með stöðu sakbornings í rannsókn á meintum mútubrotum, skattsvikum og peningaþvætti, séu meðal kaupenda. Einnig er þar að finna félög í eigu fjárfesta sem koma af bankarekstri hérlendis á árunum fyrir fjármálahrunið. En raunar bætir hæstv. ráðherra um betur. Hann skellir skuldinni á þingið sem hann segir að hafi ekki sett nein skilyrði fyrir því hverjir mættu kaupa né fyrir hversu mikið. Fyrirgefið, virðulegur forseti, en það er ráðherra sem ber ábyrgð á söluferlinu, ekki þingið. Þetta er frekar ógeðfelld atlaga að þinginu. Þingið fer hins vegar með eftirlitshlutverk gagnvart ráðherra og embættisverkum hans og þingið hefur talað. Í gær komu fulltrúar allra flokka upp í pontu og lýstu yfir vilja til þess að setja á fót rannsóknarnefnd Alþingis um söluna. Það er okkar þingsins að ákveða hver rannsakar verk ráðherra, um hvað sú rannsókn snýst og hvernig hún verður framkvæmd. Það er ekki ráðherra að ákveða forsendur rannsóknar á sínum eigin embættisverkum, hvað þá þegar sú ákvörðun er í beinni andstöðu við vilja alls þingsins. Ráðherra sækir umboð sitt til þingsins og hann sætir eftirliti þingsins. Ég skora því á fjármálaráðherra að virða vilja alls þingsins og hætta að skipta sér af rannsókn á eigin embættisverkum strax í dag. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)