störf þingsins.
Virðulegur forseti. Kæru samverkamenn á Alþingi. David Lynch kvikmyndaleikstjóri skrifaði bókina Fiskað í djúpinu um ávinning þess að stunda innhverfa íhugum. Hann segir að bestu hugmyndirnar komi úr því kyrrðarástandi sem hugleiðslan færir. Fyrrnefndur David Lynch og kollegi hans, Sigurjón Sighvatsson, niðurgreiða námskeið í innhverfri íhugun á Íslandi og ég hvet alla sem kost hafi á því að nýta sér þau tækifæri. Fram undan er dymbilvika. Fram undan eru páskar og kjörinn tími til ígrundunar og íhugunar, einkum og sér í lagi á því sem verða mætti þjóð okkar til eflingar og aukningar á m.a. tekjustofnum til að standa straum af öllum þeim verkefnum sem okkur er gert að axla ábyrgð á og kosta. Þeim fjölgar á hverjum degi, hverju ári. Þau eru skrifuð ofan í okkur, ekki bara af þinginu, af ríkisstjórninni, heldur af Evrópuþingi og 55.000 ofvirkum embættismönnum þar. Ég ætla að biðja ykkur um að ígrunda þann tvískinnung sem við látum líðast hér t.d. Við erum að framleiða hér fíkniefni í fljótandi formi en við bönnum framleiðslu á gróðurhúsajurtum á borð við kannabis, sem er ein mesta aukning í lyfjaframleiðslu í dag. Hampur, iðnaðarhampur er annað. Ýmisleg spilatæki eru leyfð, önnur ekki. Ég ætla hins vegar bara segja það: Við skulum ígrunda með fordómaleysi og opnum huga alla möguleika okkar hér til að skapa umhverfi til aukningar (Forseti hringir.) á tekjum íslenska ríkisins svo að við getum sett fólkið fyrst í forgrunn, staðið straum af öllum þeim útgjöldum sem okkur ber að axla ábyrgð á. Látum páskana nýtast okkur vel í þessum efnum. Gleðilega páska.