152. löggjafarþing — 65. fundur,  8. apr. 2022.

störf þingsins.

[10:54]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Virðulegi forseti. Hér í gær ræddu kollegar mínir á þinginu, hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og hæstv. fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson, þá hugmynd að nú væri færi á að gefa fólkinu í landinu restina af Íslandsbanka, taka upp gamla tékkheftið og senda okkur öllum ávísun, skipta þannig 42% hlut í bankanum upp á milli landsmanna. Það er sannarlega áhugaverð hugmynd sem reyndar er alls ekki ný af nálinni og hefur verið framkvæmd áður við mismikla hrifningu. Þau orð fjármálaráðherra að þessi hugmynd hafi verið rædd af hans hálfu við samstarfsflokkana kemur verulega á óvart. Ekki kannast ég við það að þessa hugmynd hafi rekið á fjörur okkar í Framsókn en eins og okkur einum er lagið útilokum við aldrei áhugaverðar hugmyndir hvaðan sem þær kunna að koma.

En, virðulegi forseti, ég vil fá að leiðrétta hér algengan misskilning. Fólkið í landinu á nú þegar 42% hlut í bankanum.

Virðulegi forseti. Kæra þjóð. Þið eigið ríkissjóð. Ríkissjóður er ekki einhver þriðji aðili, hann er sameign okkar allra og saman eigum við líka skuldir hans. Ég hef nokkurn áhuga á því að viðra þessa hugmynd. Ég tel að nær væri að 42% færu til lægstu tekjutíundarinnar í landinu, fólksins sem vill kaupa sér húsnæði og á erfitt með það, fólksins sem á erfitt með að ná endum saman, fólksins sem er ekki fagfjárfestar. Sé þessi leið ekki fær vil ég að sjálfsögðu halda plani, selja hlutinn hæstbjóðanda, nýta fjármunina í að fjölga heilbrigðisstarfsfólki, fjölga heilsugæslum og fjárfesta í heilsu þjóðarinnar því arðurinn af þeirri fjárfestingu er ómetanlegur.