152. löggjafarþing — 65. fundur,  8. apr. 2022.

störf þingsins.

[10:56]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Kæra þjóð. Við erum í vanda. Við höfum misst allt traust á framkvæmd hæstv. fjármálaráðherra við sölu á Íslandsbanka, sölu á hlut þjóðarinnar í Íslandsbanka. Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir segist vera svekkt, líklega svekkt yfir því að hafa verið svona auðtrúa sem fulltrúi í hv. fjárlaganefnd að kokgleypa upplýsingar um framkvæmd sölunnar gagnrýnislaust, framkvæmd sem nú hefur kostað íslenskan almenning milljarða í formi afsláttar til handa útvöldum kaupendum á þessum hlutum. Þetta ferli er orðið meingallað, ferli sem talað var um að ætti að hafa lokað útboð hæfra fjárfesta, gagnsætt ferli, sem reynist svo vera einhvers konar skrípaleikur. Þetta er algjört kaos og eftir því sem hæstv. fjármálaráðherra tjáir sig oftar og stjórnarliðar reyna að telja okkur trú um að þetta sé allt í lagi, þeim mun dýpri verður pollurinn, drullupollurinn vil ég segja, sem við erum komin í. Þetta er slíkt fádæma klúður að það dugar ekki að setja þann starfsmann sem í augnablikinu gegnir embætti ríkisendurskoðanda í verkið að útbúa skýrslu. Það er ekki nóg, herra forseti. Hér þarf að setja á laggirnar rannsóknarnefnd Alþingis sem mun hafa (Forseti hringir.) mun víðtækari heimildir til rannsókna en ríkisendurskoðandi hefur nokkru sinni, (Forseti hringir.) samanber lög um rannsóknarnefndir og lög um ríkisendurskoðanda.