152. löggjafarþing — 65. fundur,  8. apr. 2022.

störf þingsins.

[10:59]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegur forseti. Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir hitti naglann á höfuðið hér rétt áðan. Við skildum það öll þannig að fá ætti fáa stóra og öfluga fjárfesta til að kaupa umtalsverðan hlut í Íslandsbanka. Reyndin varð hins vegar sú að þarna var líka mikill fjöldi lítilla aðila, vissulega vanir fjárfestar að stærstum hluta, að kaupa litla hluti. 80 aðilar af rúmlega 200 að kaupa fyrir 50 millj. kr. eða minna, nokkrir undir 10 milljónum. Allir þessir fá afslátt sem rökstuddur var með því að réttlætanlegt væri að gefa afslátt þegar stór eignarhluti væri keyptur. Það kom fram hjá Bankasýslunni í aðdraganda útboðs, með leyfi forseta: „Í kjölfar tilkynningarinnar hafa umsjónaraðilar, söluráðgjafar og söluaðilar samband við viðskiptavini sína til að kanna áhuga á þátttöku og safna áskriftarloforðum.“ Auðvitað er spurningin áleitin um það hvort þarna sé ekki eitthvert samskiptaleysi á milli Bankasýslunnar og umsjónaraðila, skortur á skýrleika eða regluverki sem er ástæðan fyrir því að listinn verður svona tilviljunarkenndur eins og raun ber vitni. Jakob Valgeir Flosason útgerðarmaður tjáir sig um söluna í dag. Hann keypti fyrir milljarð og vildi kaupa meira. Hann lýsir útboðinu sem átti að verða en varð ekki. Ef menn vilja gagnrýna eitthvað þá ættu þeir að horfa á verðið sem ríkið seldi á. Að mínu mati hefði ríkið átt að selja til fárra en öflugra kjölfestufjárfesta eins og talað var um í upphafi. Það var ekki gert. Í staðinn voru aðallega lífeyrissjóðirnir sem pressuðu verðið niður í þessar 117 kr. á hlut. Það hefði með öðrum orðum verið hægt að fá hærra verð ef farið hefði verið eftir því sem lagt var upp með. Hluthafalistinn eins og hann lítur út núna, með afar umdeildum hópi kaupenda sem voru valdir til að kaupa, eins og ég rakti hér á undan, talar inn í samfélag sem treystir illa bönkum, bankakerfi og einkavæðingu fjármálastofnana af góðri og gildri ástæðu.

Hvað sem öllu líður, hvað sem óskhyggju ríkisstjórnarinnar og Bankasýslunnar líður, þá mun aldrei ríkja traust þegar þetta er niðurstaðan í þeim raunveruleika sem þjóðin býr í í kjölfar bankahruns. Að tala um traust í því samhengi er pólitískur ómöguleiki.