störf þingsins.
Herra forseti. Í óundirbúnum fyrirspurnatíma í gær spurði hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, hæstv. fjármálaráðherra um afstöðu ráðherrans til þess hvort til greina kæmi að afhenda öllum Íslendingum til jafns hlut í Íslandsbanka sem myndi þýða, miðað við núverandi hlut ríkissjóðs, að hver fjögurra manna fjölskylda fengi rúmlega milljón króna eign í bankanum og þar með væru allir Íslendingar orðnir eigendur að bankakerfinu. Fjármálaráðherra tók þessum vangaveltum vel en lýsti yfir pólitískum ómöguleika eins og sakir standa þar sem samstarfsflokkur eða -flokkar væru nálguninni andsnúnir. Það er auðvitað nauðsynlegt að draga fram hvort það er Vinstrihreyfingin – grænt framboð eða Framsóknarflokkurinn sem leggst gegn því að almenningur allur eignist beinan eignarhlut í banka. Hv. þm. Jóhann Friðrik Friðriksson kom hér inn á málið fyrr í þessari umræðu og ég verð að viðurkenna að ég er engu nær varðandi afstöðu Framsóknarflokksins að öðru leyti en því að flokkurinn telur þessa hugmynd ekki hafa verið rædda og þá standa eftir hv. þingmenn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. En það er þó áhugavert að í ræðu hv. þm. Jóhanns Friðriks Friðrikssonar kom fram að afstaða Framsóknarflokksins virðist vera sú að það sem skipti mestu máli sé hæsta mögulega verð fyrir eignarhlutinn. Þá liggur fyrir að Framsóknarflokkurinn er þeirrar skoðunar að eigendur hinna föllnu banka í bankahruninu séu velkomnir hingað inn, bara að því gefnu að þeir séu tilbúnir að greiða örlítið hærra verð en t.d. lífeyrissjóðirnir. En það er þá ágætt að það hefur verið rammað inn.
En aftur að viðbrögðum hæstv. fjármálaráðherra. Í gær sagði Bjarni Benediktsson, með leyfi forseta:
„En sú leið að afhenda Íslendingum beint eignarhlut í ríkisbanka er nokkuð sem ég hef lengi talað fyrir. Ég hef ekki náð samstöðu um það með samstarfsflokkum eða öðrum hér á þinginu til að hrinda því í framkvæmd …“
Ég tel núna, hæstv. forseti, að það verði að gera ráð fyrir því að í vikunni á milli þinghléa verði umræðu um þetta hér í þinginu og (Forseti hringir.) til vara mun þingflokkur Miðflokksins óska eftir sérstakri umræðu (Forseti hringir.) um akkúrat þetta efnisatriði því að þetta verðum við að leiða fram, hvor ríkisstjórnarflokkanna, (Forseti hringir.) hvor samstarfsflokka Sjálfstæðisflokksins, leggst gegn því að almenningur allur fái beina eignaraðild að bankakerfinu.
(Forseti (BÁ): Forseti minnir enn á ræðutíma sem er takmarkaður í störfum þingsins.)