störf þingsins.
Virðulegi forseti. Fæst okkar hefðu trúað því að árið 2022 væri stríð í Evrópu og undirbúa þyrfti komu flóttamanna frá Úkraínu til landsins. Í einu vetfangi er lífi fólks snúið á hvolf. Í upphafi árs áttu þau venjulegt líf, keyptu í matinn, mættu í skóla og vinnu, héldu barnaafmæli, voru elskuð og elskuðu. En nú tilheyrir hversdagurinn annarri vídd. Í dag eru þau á flótta frá heimalandinu með ekkert nema handfarangur og sorg í hjarta. Borgir hafa verið lagðar í rúst og saklaust fólk tapað lífinu. Á meðan stjórnvöld bregðast við í alþjóðasamvinnu hefur almenningur á Íslandi fylgst sorgmæddur með þróun mála og fyllst vanmætti. Það er erfitt að fylgjast með úr fjarlægð og geta lítið gert. Þá fyllist ég stolti þegar ég sé viðbrögð fyrirtækja og almennings á Íslandi. Nú þegar er búið að semja um pláss fyrir 2.000 einstaklinga á mismunandi stigum dvalar. Er það vel gert á svo stuttum tíma en enn er þó þörf fyrir meira húsnæði. Síðustu daga hef ég séð í hópum á Facebook að unnið er að undirbúningi komu flóttamanna til landsins. Sjálfboðaliðar hafa safnað fötum, húsgögnum og leikföngum fyrir börn, alls konar húsbúnaði til að búa flóttamönnum fallegt heimili. Þá sá ég starfsfólk Háskólans á Bifröst ásamt fleiri sjálfboðaliðum ganga úr vinnu til að bera inn húsgögn, dusta sængur og búa um rúm, lítill bangsi var settur á sæng.
Þessi samstaða, virðulegi forseti, kemur mér ekki á óvart en samt sem áður fyllist ég þakklæti fyrir að búa í landi sem tekur opnum örmum á móti fólki á flótta og er tilbúið að leggja á sig aukna vinnu fyrir aðra. Fram undan er dymbilvika, kyrrðarvikan. Göngum til hennar í þeirri bæn að friður komist á í Úkraínu. Gleðilega páska.