152. löggjafarþing — 65. fundur,  8. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[11:06]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Við erum í traustkrísu og við þurfum að bregðast við því núna. Á undanförnum 12 klukkustundum hafa stjórnarliðar snúið skipinu við og beina spjótum sínum að Alþingi Íslendinga. Alþingi á núna að vera orðið sökudólgurinn í þessu dæmalausa ferli við sölu á hlut í Íslandsbanka og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir hin fórnfúsa hefur ákveðið að taka þetta á sig og aðra þá sem sitja í hv. fjárlaganefnd. Við þurfum rannsókn, við þurfum rannsókn strax. Rannsóknin verður ekki gerð af hálfu ríkisendurskoðanda sem hefur einfaldlega ekki til þess nægar heimildir í lögum að skipa fólki að koma í skýrslutöku, til að heimila fólki að koma í skýrslutöku án þess að fella á sig sök, til að skylda fyrirtæki og félög og aðila til að afhenda gögn. Ríkisendurskoðandi hefur það ekki, fyrir utan það að við höfum engan kosinn ríkisendurskoðanda að störfum. (Forseti hringir.) Hann hefur verið kallaður til starfa hjá ríkisstjórninni sem ráðuneytisstjóri. Við erum núna með ráðinn starfsmann (Forseti hringir.) sem staðgengil sem á sitt lífsviðurværi undir því að styggja ekki ríkisstjórnina. Við verðum að fá rannsóknarnefnd Alþingis.