um fundarstjórn.
Forseti. Þingflokkar stjórnarandstöðunnar hafa síðan í gær verið að reyna að óska eftir því að sátt náist um skipan rannsóknarnefndar, að stjórnarliðar sem komu fram í umræðum í gær og sögðust styðja við hana standi við orð sín. Það er rík ástæða til þess að skipuð sé hér sjálfstæð rannsóknarnefnd þar sem hljóð og mynd tala ekki saman þegar kemur að sölu ríkisins á Íslandsbanka. Markmiðið með sölunni var eitt og framkvæmdin bara allt önnur. Til þess að traust skapist um rannsóknina og niðurstöður hennar þá verður hún að vera yfir allan vafa hafin. Fjármálaráðherra ber ábyrgð á sölu Íslandsbanka og nú eftir misheppnað útboð hefur ráðherra kallað eftir rannsókn ríkisendurskoðanda. En, forseti, eftir misheppnaða framkvæmd sölunnar er traust til fjármálaráðherra hreinlega rofið, skiljanlega. Það er því ótækt að hann taki fram fyrir hendur þingsins með því að ákveða að setja á fót rannsókn að eigin vali. Fjármálaráðherra á ekki að fá að ráða hvernig eftirlit með honum sjálfum er háttað. Það meikar ekki sens, afsakið slettuna. Rannsóknin verður að fá að vera á forsendum þingsins. (Forseti hringir.) Það var mjög skýrt í umræðunni í gær að stuðningur væri fyrir því að setja á fót rannsóknarnefnd Alþingis um söluna (Forseti hringir.) og ég vona innilega að það verði niðurstaðan í dag og við fáum þá niðurstöðu fyrir páskahlé.