152. löggjafarþing — 65. fundur,  8. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[11:09]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Hv. stjórnarþingmenn hafa margir tjáð sig núna um að þeir hafi gengið út frá því að í þessu söluferli væri verið að leita eftir stórum langtímafjárfestum. Það héldum við líka í stjórnarandstöðunni. Við sjáum núna vogunarsjóði, erlenda aðila sem keyptu í fyrstu umferð og seldu strax aftur, kaupa aftur. Við sjáum aðila með slæma rekstrarsögu frá því fyrir hrun í bankarekstri. Við sjáum smáa aðila sem geta allt eins keypt bara á markaði eins og við hin. Við sjáum umsjónaraðila útboðs sem kaupa sjálfir og konur eru nánast ekki sýnilegar í kaupendahópnum. Allt þetta gefur okkur tilefni til að rannsaka málið og við þurfum að rannsaka það hér í þinginu með sérstakri rannsóknarnefnd sem hefur meiri heimildir og ríkari en Ríkisendurskoðun.