um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Í gær tóku fulltrúar allra flokka til máls og studdu sjálfstæða rannsóknarnefnd um söluna á Íslandsbanka. Mér finnst mjög mikilvægt að sá vilji þingsins verði virtur. Mér finnst líka mjög mikilvægt að ráðherrar þessarar ríkisstjórnar fari ekki í einhvern skollaleik að reyna að koma skuldinni af þeirra eigin framkvæmd yfir á þingið. „Þið voruð svona vitlaus að trúa okkur þegar við sögðum ykkur að við ætluðum að ná í stóra fjárfesta. Þið sögðuð ekkert um að við ættum að gera það sem við sögðumst ætla að gera.“ Nei, kannski gengum við bara út frá því að þið ætluðuð að gera það sem þið sögðuð og álitum þar af leiðandi ekki ástæðu til að tilgreina það sérstaklega að þið ættuð að gera það sem þið sögðust ætla að gera.
Þetta er svo fáránlegt, virðulegi forseti, þetta er svo fáránleg orðræða. Það er ekki þingið sem ber ábyrgð á þessari sölu. Það er hæstv. fjármálaráðherra sem ber ábyrgð á þessari sölu og það er ótækt að hann ætli að stýra umfangi og framkvæmd rannsóknar á sínum eigin embættisverkum. (Forseti hringir.) Það er ekki til þess fallið að efla traust og fer gegn skýrum þingvilja sem kom hér fram í gær frá fulltrúum allra flokka.