um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Klúður og aftur klúður hjá ríkisstjórninni í þessum bankamálum. Þjóðin vildi ekki láta selja banka. Hvers vegna ekki? Vegna þess að það er of stutt frá bankahruni. Hvað gerir ríkisstjórnin þá? Jú, hún rýkur af stað. Hvernig? Gagnsæi? Nei, þeir bjóða upp á það að bankahrunsgargarnir skríði undan steini og komi og kaupi aftur. Hugsið ykkur, enginn lærdómur, ekkert minni, hvorki skammtíma né langtímaminni. Fólkið mótmælir. Við eigum að mótmæla vegna þess að okkur ber skylda til þess, vegna þess að á sama tíma og þeir eru að leika sér við að gera þá ríku ríkari eru þeir að lemja á fólki, árum saman, fátæku fólki sem er að reyna að komast úr sárafátækt í fátækt. Það má ekki, nei, þeir eru uppteknir við að einkavæða fyrir vini sína.