um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Hæstv. fjármálaráðherra er vörslumaður ríkiseigna. Það er hann sem hefur klúðrað söluferlinu á Íslandsbanka. Það er ekki hans að ákveða eða gefa einhver fyrirmæli um það á hvaða vettvangi söluferlið verði rannsakað. Línan frá honum er sú að það sé Ríkisendurskoðun sem eigi að sjá um þetta. Hver er staðan hjá Ríkisendurskoðun? Jú, það er enginn ríkisendurskoðandi að störfum sem hefur hlotið kosningu frá Alþingi. Þetta er trúnaðarmaður Alþingis en það er enginn kosinn ríkisendurskoðandi að störfum vegna þess að stjórnarmeirihlutinn selflutti hann yfir í ráðuneyti með alveg ævintýralegri misbeitingu á ákvæði starfsmannalaga um flutning embættismanna sem ég hef margvarað við og gagnrýnt hér í ræðustól og fleiri. (Forseti hringir.) Ég fagna því að í gær hafi myndast þverpólitísk sátt um það í þingsal að sett verði á fót rannsóknarnefnd um að yfirfara (Forseti hringir.) söluferlið. Ég trúi því ekki að það verði hvikað frá því.