152. löggjafarþing — 65. fundur,  8. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[11:14]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Frá bankahruni hefur ekki farið fram nauðsynleg umræða meðal almennings um það hvernig við viljum sjá bankakerfið þróast hér á landi og hvað þurfi að gera til að koma til móts við vilja almennings í þeim efnum. Við höfum ekki talað um fjölbreytni, um samkeppni, um öflugt eftirlit, um neytendavernd, um ódýra innlenda greiðslumiðlun eða um traust á fjármálastofnunum, en þær stofnanir eru rúnar trausti. Og þó að það sé ekki nema bara fyrir það verðum við að rannsaka hvernig staðið var að þessari sölu núna til þess að fá skilning og skapa traust á þessu ferli og á því að eigendur bankans séu færir um að reka hann þannig að hann þjóni fólki og fyrirtækjum í landinu.

Ég fagna því að í gær hafi myndast hér þverpólitísk samstaða um að stofna rannsóknarnefnd á vegum Alþingis til að fara vel yfir þessa stöðu. Formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, formaður þingflokks Vinstri grænna og fulltrúi Framsóknarflokksins lýstu sig viljuga til þess og það gladdi mig.