152. löggjafarþing — 65. fundur,  8. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[11:16]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Ég vil taka undir niðurlagsorð hv. þm. Oddnýjar Harðardóttur sem vísaði í samtöl sem áttu sér stað í gær og þátttöku þingflokksformanna, a.m.k. þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins, hér undir þessum lið í gær (Gripið fram í: Og VG.) og VG. Að þeim umræðum loknum gat ég ekki skilið annað en svo að það væri bærilegasta sátt um það að gengið yrði til þess verks að leiða þetta í jörðu með skynsamlegum hætti á forsendum rannsóknarnefndar. Ég hef séð þingflokksformenn stjórnarflokkanna alla hér í salnum og við salinn síðasta hálftímann. Ég hvet þá til þess, þótt við þingmenn séum auðvitað ekki í þeirri stöðu að kveða aðra þingmenn hér til samtals undir fundarstjórn forseta, en er ekki alveg nauðsynlegt að þingflokksformenn stjórnarflokkanna láti í ljós (Forseti hringir.) afstöðu sína varðandi það hvort eitthvað hafi breyst um þetta atriði síðan fundarstjórn var rædd hér fyrir sólarhring síðan?