152. löggjafarþing — 65. fundur,  8. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[11:17]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegur forseti. Við höfum verið að rekja það hérna núna að gagnrýni á þetta sölufyrirkomulag kemur úr öllum áttum og á mjög mismunandi forsendum. Hún kemur frá lífeyrissjóðunum, frá útgerðaraðilum, einkafjárfestum og meira að segja þeir sem minnstir eru og keyptu þarna hluti eru síðan ósáttir við það margir hverjir að listinn hafi verið birtur á endanum, sem er kannski furðulegasta ástæðan fyrir því að vera á móti því hvernig þetta allt saman var gert.

Talað var um það hér í gær, eins og nokkrir hv. þingmenn hafa komið inn á, að skipuð yrði rannsóknarnefnd. En á sama tíma er hæstv. fjármálaráðherra að taka það upp að sínu eigin frumkvæði, án samtals við nokkurn einasta mann, og greinilega án þess að tala við neinn í stjórnarliðinu eða annað, að setja málið í ákveðið ferli sem er ekki heppilegt vegna þess hvernig þetta mál er vaxið. Við hljótum að halda á lofti þeirri kröfu um að það verði skipuð rannsóknarnefnd til að fara yfir þetta. Það er heppilegra, bæði út frá því sem hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson nefndi hérna áðan og svo var líka ágætlega farið yfir muninn á því hverjar heimildir rannsóknarnefndar eru annars vegar og ríkisendurskoðanda hins vegar.