um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Ég styð að sjálfsögðu rannsóknarnefnd Alþingis um sölu Íslandsbanka en það er ekkert skrýtið að þetta hafi farið svona því það hefur aldrei farið fram rannsókn á því sem gerðist eftir hrun. Við höfum ekkert lært af því. Eftir páska mun ég leggja fram beiðni um sjálfstæða rannsókn á afdrifum bankakerfisins og heimilanna eftir hrun. Þessari skýrslu hef ég barist fyrir í mörg ár og treysti því nú að hv. þingmenn sjái nauðsyn þess að hún verði unnin þegar við horfumst í augu við atburði undanfarinna daga. Atburðarásin var algjörlega fyrirsjáanleg okkur sem höfum einhverja hugmynd um hvernig staðið var að málum eftir hrun. Fólkið og heimilin sem urðu fyrir skaða vegna þess eiga skilið að fá uppreisn æru og ég vænti stuðnings þingheims við rannsóknarskýrslu heimilanna.