um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég tel að það sé algjörlega réttur farvegur að hefja þessa rannsókn hjá Ríkisendurskoðun. Það er sá aðili sem við treystum fyrir því að gera ýmiss konar úttektir fyrir þingið og mér finnst alvarlegt hvernig ég skynja það að hér virðist ekki ríkja traust hjá öllum á því embætti. Ríkisendurskoðandi gæti til að mynda skilað skýrslum og áfangalýsingum til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Mér finnst þetta eðlilegur og réttmætur upphafspunktur á rannsókn. Það getur svo alveg þýtt það að einnig verði í kjölfarið skipuð rannsóknarnefnd ef við teljum þær upplýsingar sem koma frá Ríkisendurskoðun á einhvern hátt ekki nægilega yfirgripsmiklar. En ég tel rétt að byrja á þessum stað, fá þessar upplýsingar frá þeirri stofnun sem gerir úttektir fyrir Alþingi og svo er hægt að gera meira í framhaldinu.