152. löggjafarþing — 65. fundur,  8. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[11:23]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Tillaga fjármála- og efnahagsráðherra um ríkisendurskoðunarleiðina er nú ein glæsilegasta smjörklípa sem ég hef séð í seinni tíð og hafa þær þó margar verið notaðar á Íslandi í gegnum árin. Það er ósköp einfaldlega þannig að það er ekki starfandi ríkisendurskoðandi sem þingið hefur kosið og það hefur ekkert með traust okkar á embættinu að gera. Hér kom maður á eftir manni í gær og sagðist styðja tillöguna um stofnun rannsóknarnefndar en það er búið að tuska stjórnarliðana til af því að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra getur ekki hugsað sér að láta fara ofan í saumana á sölunni sem stenst enga skoðun og er þá alveg sama við hvern er talað. Það er ósköp einfaldlega þannig að meiri hlutinn treystir sér ekki til að láta kryfja þetta til mergjar og gefa rannsóknarnefnd sem starfar í umboði Alþingis þær rannsóknarheimildir sem hún þarf að hafa.