um fundarstjórn.
Forseti. Ég vil taka fram, vegna orða hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur hér áðan, um að hvergi komi fram í gögnunum að ætlast hafi verið til að selt yrði til stórra fjárfesta eða eitthvað því um líkt, að það var einfaldlega kynnt þannig í fjárlaganefnd að verið væri að nota tilboðsfyrirkomulagið af því að ekki væri hægt að ná stórum aðilum með markaðssettu útboði eða miðlunaráætlun — þetta er eina fyrirkomulagið sem hægt er að nota til að ná stórum fjárfestum. Það var alltaf kynnt samhliða því að búist væri við því að lífeyrissjóðirnir væru að koma inn í þetta. Það er að sjálfsögðu ekki skrifað niður af því að það var kannski möguleiki á erlendum aðilum eða einhverju því um líku. En það var kynningin allan tímann, að hæfu fjárfestarnir sem verið væri að leita að yrðu örugglega lífeyrissjóðirnir. Það er sjónarhornið sem við erum að sjá og meta það sem síðan gerðist út frá. Það var ekki það sem gerðist. Lífeyrissjóðirnir voru skertir og fullt af pínulitlum fjárfestum voru teknir inn í þetta.