152. löggjafarþing — 65. fundur,  8. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[11:25]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Maður verður alltaf meira og meira hissa eftir því sem þessu máli vindur fram. Eftir að hafa hlustað á umræðuna í gær, þar sem stjórnarandstaðan lagði til ákveðið fyrirkomulag á rannsókn, komu fulltrúar meirihlutaflokkanna upp í pontu og lýstu sig samþykka því að sú leið yrði farin. Ég er líka mjög hissa á því að sjá nefndarmenn í fjárlaganefnd koma hér upp og fleygja sér á sverðið. Við vorum aldrei beðin um að semja reglur sem næðu utan um söluna. Það var engin beiðni um það. Fyrir okkur var bara kynnt aðferð sem átti að nota sem kölluð er tilboðsleið. Það var búið að ákveða það fyrir löngu að ráðherrann geti selt þennan banka. Við vorum beðin um álit á því, punktur. En að hlusta á þessa umræðu hér og eiga að fara að gera fjárlaganefnd og þingið að einhverjum sökudólgi í málinu — hvaða rugl er þetta?