152. löggjafarþing — 65. fundur,  8. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[11:27]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Í gær stigu stjórnarliðar fram og studdu umrædda rannsóknarnefnd Alþingis, m.a. hv. þm. Óli Björn Kárason, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Hann sagði að ef það væri þannig að þingheimur teldi ekki nægjanlegt að láta Ríkisendurskoðun gera þetta myndi hann styðja sérstaka nefnd á vegum þingsins. Hann sagði með leyfi: Það er fullkomlega eðlilegt vegna þess að það er ekkert sem ég óttast í slíkri rannsókn. Við þetta kviknar forvitnileg spurning: Hefði hv. þingmaður ekki stutt rannsóknina ef hann hefði eitthvað að óttast? Og í öðru lagi eftir atburði sólarhringsins: Styður hv. þingmaður enn orð sín frá því í gær?