um fundarstjórn.
Herra forseti. Þetta mál snýst um traust. Traust til ríkisendurskoðanda? Já, við treystum ríkisendurskoðanda. Hann skilar settlegri skýrslu um hvað hefði betur mátt fara og að við verðum að gera betur næst. Við höfum fengið margar slíkar skýrslur, býsna góðar, en það er ekki það sem þarf á þessum tímapunkti. Traust til hæstv. fjármálaráðherra — það ríkir ekki mikið traust til hans varðandi þetta ferli allt saman, eðlilega ekki. Þetta er allt eitt stórt dómadagsklúður. Og að lokum snýst þetta um traust til meiri hlutans sem nú ætlar, þvert á vilja stjórnarandstöðunnar, að láta Ríkisendurskoðun framkvæma rannsókn og svo, ef þeim hugnast í krafti meiri hluta, að fara þá kannski í rannsóknarnefnd Alþingis. Kannski, ef þeim hugnast.
Herra forseti. Við höfum áður séð hvernig þau nota vald sitt hér og hvernig þau rökstyðja það að láta réttlætið ekki ná fram að ganga. Við sáum það í Landsréttarmálinu á síðasta kjörtímabili. Við sáum það í kosningamálinu í Norðvesturkjördæmi. Við ætlum ekki að sjá það í þriðja sinn. Nú förum við í alvörurannsókn af því það skiptir allan almenning á Íslandi máli. Við viljum ekki annað hrun.