152. löggjafarþing — 65. fundur,  8. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[11:29]
Horfa

Óli Björn Kárason (S):

Herra forseti. Mér þykir miður að gefið sé í skyn af einstökum hv. þingmönnum að hæstv. fjármálaráðherra geti með einhverjum hætti haft áhrif á starf og störf ríkisendurskoðanda, eins og mér þótti liggja hér í orðum sumra hv. þingmanna. Ríkisendurskoðandi er og verður sjálfstæður í öllum sínum vinnubrögðum og við verðum að tryggja að svo sé. Hann starfar í okkar umboði og hann starfar á okkar ábyrgð. Ég hef sagt og ætla að endurtaka það hér að ef það verður niðurstaða þingsins að úttekt ríkisendurskoðanda, sem ætti ekki að taka langan tíma, dugi ekki til þá mun ég styðja það að komið verði á fót sjálfstæðri rannsóknarnefnd. (Forseti hringir.) En ég bið þingheim um að byrja á réttum enda á hlutunum. Stöndum nú einu sinni með þeirri undirstofnun sem starfar í okkar umboði og á okkar ábyrgð (Forseti hringir.) og gefum ríkisendurskoðanda færi á að stunda sína sjálfstæðu (Forseti hringir.) úttekt á því sem gerðist og hvernig staðið var að verki við sölu á Íslandsbanka.

(Forseti (BÁ): Forseti verður að minna á að hv. þingmenn verða að virða ræðutímann hérna. Ekki fara 50% fram úr þeim tíma sem áætlaður er til ræðuhalda um fundarstjórn forseta.)