152. löggjafarþing — 65. fundur,  8. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[11:31]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Það er athyglisvert að fylgjast með þróun mála hér frá því í gær og fylgjast með yfirlýsingum stjórnarliða hér í dag. Um hvað snýst þetta? Hv. þm. Helga Vala Helgadóttir talaði um traust og það er sannarlega stóra málið sem við þurfum að vinna í kringum. Hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir benti á smjörklípuna sem er núna í kringum ríkisendurskoðanda. Það virðist vera hagur stjórnarliða, einhverra hluta vegna, að drepa málum á dreif og láta umræðuna snúast um ríkisendurskoðanda en ekki um framkvæmd útboðsins og um traust almennings á hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra og fjármálakerfinu og ferlinu öllu. Við eigum hér í þessum sal að sjá sóma okkar í að standa saman (Forseti hringir.) um að rannsaka þetta mál. Við eigum að stofna sérstaka rannsóknarnefnd og það á að vera þingið sjálft (Forseti hringir.) sem ákveður það. Við eigum ekki að samþykkja það (Forseti hringir.) að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra standi upp og segi: Ég hef ákveðið að það verði ríkisendurskoðandi sem rannsakar og veitir eftirlit með mér sjálfum. Það er ekki réttlátt. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)

(Forseti (BÁ): Forseti minnir enn á ræðutímann sem í þessu tilfelli fór líka 50% fram úr leyfilegum tíma.)