um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Auðvitað á að skipa rannsóknarnefnd Alþingis og það strax. Við erum búin að hlusta hérna hvað eftir annað á ríkisstjórnina segja: Ekki benda okkur. Þetta er Bankasýslunni að kenna. Ekki benda okkur. Þetta er Alþingi að kenna. Ekki benda á okkur. Þetta er einhverjum allt öðrum að kenna en okkur. Síðan kemur hún með kórinn og segir: Setjum þetta til ríkisendurskoðanda, hann er á ykkar vegum. Ríkisendurskoðandi er ekki á mínum vegum. Ég kaus ekki núverandi ríkisendurskoðanda. Hann var skipaður af ríkisstjórninni. Hvers vegna í ósköpunum haldið þið að hæstv. fjármálaráðherra vilji láta hann endurskoða sig? Vegna þess að hann búist við því að hann fái falleinkunn? Nei. Hann býst við hvítþvotti. Rannsóknarnefnd Alþingis verður að koma núna strax.