um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Við eigum úrræði fyrir þetta mál. Við eigum öflugt úrræði sem heitir rannsóknarnefndir Alþingis. Það er verkfærið til að taka á þessu máli. Mér finnst svo áhugavert að við erum að upplifa hér á hverjum einasta degi í þessum sal að það falla innan hans heimsmet í meðvirkni. Við hlustuðum á þingflokksformenn Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna lýsa því yfir í gær að að sjálfsögðu væri eðlilegt að fara í það að fá rannsóknarnefnd í málið. Forsætisráðherra talar um að það sé eðlilegt að spyrja gagnrýninna spurninga. Ef það má spyrja gagnrýninna spurninga þá hlýtur markmiðið að vera að fá fram svörin við þessum spurningum. Ég átta mig ekki á því hvernig það er hægt að „presentera“ að það eigi að fá að spyrja spurninga en helst þó ekki þannig að það komi fram óþægileg svör.