152. löggjafarþing — 65. fundur,  8. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[11:36]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Hvert erum við komin? Ég er eiginlega hálfmiður mín eftir að hafa hlustað á hæstv. forsætisráðherra í fréttatíma í gær. Þarf í alvöru talað að bíða eftir skýrslu frá ríkisendurskoðanda til að segja almenningi að það séu spilltir viðskiptahættir að eigendur og starfsmenn umsjónaraðila útboðsins kaupi ríkiseign á vildarkjörum, að það sé með öllu ótækt að hleypa inn erlendum sjóðum sem keyptu í síðustu umferð og seldu hratt með gróða, í ferli sem átti að vera fyrir langtímafjárfesta, af því að viðkomandi erlendir sjóðir voru í viðskiptum við söluaðila sem fengu háar þóknanir fyrir það, að 700 millj. kr. sé óeðlilega há þóknun í tilboðsferli sem átti að lágmarka kostnað? Gáleysið í þessu ferli er á ábyrgð hæstv. ráðherra og það er komið upp á yfirborðið. Það er búið að birta mörg þessara gagna. Að benda síðan bara á Bankasýsluna er til marks um, eins og ég sagði áðan, fullkomið forystuleysi og varpar ljósi á vanhæfni. Það er virðingarleysi við íslenska þjóð að horfa fram hjá staðreyndum sem eru komnar fram nú þegar.