um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Í aðdraganda sölunnar talaði fjármálaráðherra alltaf um þetta lokaða útboð þannig að það væri verið að leita eftir kjölfestufjárfestum og þess vegna var gefinn þessi afsláttur sem varð síðan niðurstaðan. En það var ekki liðinn dagurinn eftir að salan hafði átt sér stað þegar var farið að tala um dreifða eignaraðild, dreifða eignaraðild í lokuðu útboði, sem mér þykir ankannalegt vegna þess að þessari dreifðu eignaraðild var náð í fyrsta útboðinu þegar þúsundir einstaklinga keyptu í bankanum. Dreifð eignaraðild átti aldrei að vera möguleiki í lokuðu útboði með afslætti. Þannig að ég skil ekki af hverju er verið að hleypa að títtnefndum einstaklingum sem hafa ekkert endilega gott orðspor á sér. Að hleypa þeim inn í lokað útboð með afslætti er algjörlega fáránlegt. Og rökin virðast vera að breytast eftir því hvernig vindurinn blæs hverju sinni.