um fundarstjórn.
Forseti. Mér finnst mjög athyglisvert að það er verið að þvæla ábyrgðinni á þessu fram og til baka. Það er verið að segja að Ríkisendurskoðun eigi að geta skoðað þetta. En málið er að við erum að tala um ábyrgð ráðherra. Það er þingið sem fer með eftirlit með athöfnum ráðherra. Það er mjög skýrt í lögum um sölumeðferð eignarhluta ríkisins að Bankasýsla ríkisins skal annast sölumeðferð eignarhluta fyrir hönd ríkisins í samræmi við ákvörðun ráðherra. Síðan þegar tilboð í eignarhlut liggja fyrir skal Bankasýsla ríkisins skila ráðherra rökstuddu mati á þeim og ráðherra tekur ákvörðun um hvort tilboð skuli samþykkt eða þeim hafnað og undirritar samninga fyrir hönd ríkisins. Þannig að þegar ráðherra tekur ákvörðun um að það eigi að fara í söluferli á ákveðinn hátt, Bankasýslan framkvæmir það og ráðherra fær það síðan í hendurnar þá er hann að votta það að sjálfsögðu: Þetta er samkvæmt ákvörðun minni. Ekki satt? Að selja pabba sínum hlut í bankanum, var það hluti af ákvörðun ráðherra? Ef hann vissi ekki af því þá er hann ekki að sinna þeirri skyldu sinni (Forseti hringir.) að hafa eftirlit með því að rétt hafi verið staðið að framkvæmdinni. (Forseti hringir.) Ef hann vissi af því þá er hann að selja pabba sínum banka.