um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Það verður seint sagt að við höfum hér á Íslandi fetað ljóssins stigu í bankarekstri hin síðari ár. Hérna er verið að ræða um mannanna verk. Þau eru ekki fullkomin í þessu frekar en öðru og ljóst að betur hefði mátt fara. Krafan um að rannsaka er fullkomlega eðlileg og hún er alveg nauðsynleg. Það kom fram í ræðustóli í gær. Allir fulltrúar flokka sem tóku til máls virtust sammála um það. Og ég ítreka það sem ég sagði í gær: Barnið er brennt og brunasárin eru ekkert gróin. Tugþúsundir Íslendinga misstu heimili sín fyrir örfáum árum og það er ekki séð fyrir endann á öllum þeim málum. Ég bendi á kvikmynd sem heitir náskyldu orði því að rannsaka, Ransacked, ránsfengur á íslensku, mynd eftir Pétur Einarsson, fyrrverandi bankastjóra Straums, með Óskari Páli Sveinssyni. (Forseti hringir.) Ég ætla að útvega ykkur aðgang að þessari mynd. Hún er einhver mesta hetjusaga íslenskra kvenna á undanförnum árum og (Forseti hringir.) hún lýsir mjög vel því sem gerðist og hvers vegna við (Forseti hringir.) erum enn á varðbergi, full af tortryggni og löngun til að láta rannsaka smá atriði og stór.