um fundarstjórn.
Hæstv. forseti. Stjórnarliðar verða að skilja að ríkisendurskoðandi hefur ekki sömu rannsóknarheimildir og rannsóknarnefndir stofnaðar af Alþingi gera. Ég ætla að nefna hér og rifja upp að Ríkisendurskoðun gerði úttekt á bankasölu árið 2002 — Búnaðarbanki Íslands, Landsbanki Íslands, bankasalan sem olli hruninu fékk heilbrigðisvottorð frá Ríkisendurskoðun. Ríkisendurskoðun hefur ekki lagaheimildir og verkfæri til að gera það sem gera þarf. Þess vegna þarf ekki að byrja þar. Við förum beint í rannsóknarnefnd, hreinsum málið upp, fólk axlar pólitíska ábyrgð og kannski, bara kannski, eflist traust kjósenda á þessum vinnustað og á bankakerfinu.