um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Ég vildi bara koma hér upp í framhaldi af ummælum hv. þm. Óla Björns Kárasonar sem einhvern veginn lét í það skína að hér ríki eitthvað mikið vantraust í garð Ríkisendurskoðunar hjá stjórnarandstöðunni. Það er rangt. Það er algerlega rangt. Hins vegar læðist að manni sá grunur að stjórnarflokkarnir vantreysti því sem gæti komið út úr niðurstöðum rannsóknarnefndar Alþingis, sem er auðvitað rétti vettvangurinn til að fara með þetta mál, eins og rakið var ágætlega áðan af hv. þm. Þórunni Sveinbjarnardóttur. Svo skulum við hafa í huga að ferlið er auðvitað þannig að við erum að kalla eftir rannsókn á því sem heyrir undir hæstv. fjármálaráðherra. Það getur eðli máls samkvæmt ekki verið þannig að sá sami ráðherra ákveði í hvaða ferli málið fari án samráðs við þingið sem þó á að hafa forræði á þessum hlutum. Það bara virkar ekki þannig. Það stendur til að selja frekari hluta af Íslandsbanka. Ef það á að gera það þannig að eitthvert traust ríki um það þá verðum við að setja þetta mál núna í rétt ferli sem er auðvitað hjá rannsóknarnefnd (Forseti hringir.) sem hefur heimildir, tæki og tól til að fara „grundigt“ (Forseti hringir.) ofan í mál og gefa þeim sem í rannsókn eru ákveðna stöðu (Forseti hringir.) sem gildir ekki hjá Ríkisendurskoðun, sem skiptir verulegu máli líka. (Forseti hringir.) Ef við ætlum að halda áfram að selja í bankakerfinu þá verðum við fyrst að stofna þessa rannsóknarnefnd.