um fundarstjórn.
Forseti. Við erum að tala um það að selja ríkiseignir og þegar slíkt er gert þarf að ríkja traust. Þegar ferlið er jafn ógagnsætt og hefur komið í ljós að það var þá hverfur þetta traust. Fólk byrjar því sjálfkrafa að spyrja: Var það svona ógagnsætt af því að það er einhver spilling í gangi? Hér hefur verið bent á að í þessu ferli hafi tekið þátt einstaklingar sem skilgreinast í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla samkvæmt lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti. Hér í gær voru allir flokkar sammála um það að fara í óháða rannsókn rannsóknarnefndar og voru óhræddir við hvað slík rannsókn myndi sýna. Nú í dag, eftir að hafa heyrt í hæstv. fjármálaráðherra, eru þau hins vegar öll það hrædd við að hæstv. ráðherra (Forseti hringir.) hafi gert eitthvað rangt að þau þora ekki að fara í slíka óháða rannsókn. Ef við viljum traust (Forseti hringir.) þarf óháða rannsókn á forsendum þingsins en ekki á þeim forsendum sem hæstv. fjármálaráðherra ákveður að setja Ríkisendurskoðun. (Forseti hringir.)
Virðulegi forseti. Hv. þingmenn. Hættum þessari meðvirkni með spillingunni og sýnum (Forseti hringir.) að við erum traustsins verð.
(Forseti (BÁ): Forseti gerir auðvitað athugasemd við það að hv. þingmaður fór verulega fram yfir heimilaðan ræðutíma.)