um fundarstjórn.
Forseti. Þetta snýst ekkert um það að við treystum ekki embætti ríkisendurskoðanda. Við treystum ekki fjármálaráðherra, um það snýst þetta, og þar af leiðandi treystum við ekki tillögum hans. Við treystum ekki tillögum fjármálaráðherra um hvernig hann telur að best sé að haga þessari rannsókn og hver hann telur að sé best til þess fallinn að fara í þessa rannsókn. Það er það sem þetta snýst um. (Gripið fram í: Ríkisendurskoðandi … ) — Nú er ég að tala. Ef ráðherra væri eitthvað annt um að trúverðugleiki ríkti um rannsóknina hefði hann einfaldlega lýst því yfir að þessi alvarlega staða kallaði á rannsókn og hann hefði sett það í hendur þingsins að ákveða hver ætti að rannsaka og rammann utan um rannsóknina. Það er talað um að meiri hlutinn vilji skapa eitthvert traust um þetta ferli. Traustið felst í því að við séum samferða hérna á þinginu um hvaða leið við ætlum að fara til að komast að hinu sanna. Ætlar meiri hlutinn í alvörunni bara að valta yfir áhyggjur stjórnarandstöðunnar í þessu máli? Við höfum lýst því yfir (Forseti hringir.) að við viljum rannsaka þetta. Við viljum sjálfstæða rannsóknarnefnd (Forseti hringir.) Alþingis til að skoða þetta mál. Og það á að biðja Ríkisendurskoðun. Skoðaði ríkisendurskoðandi bankahrunið áður en rannsóknarnefndin var sett á laggirnar? (Forseti hringir.) Nei, auðvitað ekki. (Forseti hringir.) Það hefur bara aldrei verið gert. Þetta er bull, forseti.