152. löggjafarþing — 65. fundur,  8. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[11:50]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Ég er á svolítið svipuðum stað og þegar ég kom upp í fyrra skipti við þessa fundarstjórn. Mig langar, með leyfi forseta, að rifja upp orð hv. þm. Sjálfstæðisflokksins og þingflokksformanns, Óla Björns Kárasonar, í gær. Þar með hélt ég að málið væri komið í mjög góðan farveg. En í gær sagði hv. þm. Óli Björn Kárason, með leyfi forseta:

„Ef það er þannig að þingheimur telur að það sé ekki nægjanlegt að Ríkisendurskoðun, embætti sem heyrir undir Alþingi, er á ábyrgð og í umboði Alþingis, fari yfir þessa sölu heldur þurfi að skipa sérstaka rannsóknarnefnd til að fara yfir söluferlið í þessu útboði þá mun ég styðja það.“

Þetta þótti mér mjög skynsamleg lending í þessu máli og ég trúi ekki öðru en að við finnum leið að þeirri niðurstöðu sem ég taldi vera komna í málið í gær og nálgast málið eins og hv. þm. Óli Björn Kárason stillti því upp í ræðu sinni í gær.