152. löggjafarþing — 65. fundur,  8. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[11:51]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Hér höfum við verið að ræða sölu á eignum ríkisins, sölu á hlutabréfum í Íslandsbanka, og margir þingmenn sem og landsmenn hafa lýst yfir áhyggjum sínum af ferlinu. Lagt var upp með það að ferlið yrði gagnsætt og opið sem er afar mikilvægt þegar selja á eignir ríkisins. Ég held að það sé líka afar mikilvægt að við hlustum á þessar áhyggjur. En um leið og ég segi það þá finnst mér eðlilegt að fyrst sé leitað til eftirlitsstofnunar ríkisins, sem er ríkisendurskoðandi. Það hefur verið sagt hér í pontu að það ferli muni ekki taka langan tíma og held ég að við ættum að ýta eins mikið á eftir því og hægt er. Gefi sú niðurstaða eitthvert tilefni til þess að skoða þetta enn frekar mun ekki standa á þingflokki Framsóknar að stofna rannsóknarnefnd til þess að skoða þetta.