um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Upphafsstefið í sölumeðferðinni var að ferlið þyrfti að vera hafið yfir trúverðugleika og að það myndi standast traust. Nú kemur glögglega í ljós af viðbrögðum alls almennings í landinu að svo er ekki. Þá er eðlilegt að gera það sem stjórnarþingmenn ætluðu sér að gera í gær sem er að beita því besta verkfæri sem við höfum til að endurvekja traustið með því að svara spurningum á raunverulegan og gagnrýninn hátt. Þetta mál snýst ekki um traust til Ríkisendurskoðunar. Þetta snýst um traust á þessu söluferli. Við eigum verkfæri til að taka á þessu. Það eru rannsóknarnefndir Alþingis. Til þess eru þær. Það er holur hljómur í því að standa hér í dag og tala um skilning á áhyggjum, tala um að það þurfi að svara spurningum en neita því svo að ætla að beita þeim verkfærum sem við höfum. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)