um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Okkur er heitt í hamsi, ég heyri það, fylgist með því. (Gripið fram í: Þetta er stórmál.) Þetta er stórmál, ég tek undir með hv. þingmanni hér í salnum. Þetta er stórmál og ég vil ítreka að ég heyri og skil og skynja. Ég vil jafnframt ítreka það sem ég sagði hér í gær að mér finnst sjálfsagt að velta við öllum steinum í þessu máli en mér finnst líka eðlilegt að við byrjum á eftirlitsstofnun okkar sem er Ríkisendurskoðun. Hér er sagt að þetta snúist ekki um traust til Ríkisendurskoðunar. Mér finnst alvarlegt að heyra vísað í 20 ára gömul gögn og niðurstöðu hjá hv. formanni stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Ég held að það þurfi að taka það til umræðu á vettvangi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar hvort raunverulega ríki traust miðað hvernig umræðan fer fram hér. (Gripið fram í.) Ég treysti ríkisendurskoðanda sem fyrsta vettvangi í þessari vinnu og að sjálfsögðu í ljósi þess að hér þurfi að velta við öllum steinum, ef sú vinna eða sú niðurstaða verður að það sé eitthvað sem þurfi að skoða frekar þá styð ég það heils hugar (Gripið fram í.)að sett verði á fót sérstök rannsóknarnefnd. (Gripið fram í: Þetta snýst ekki um … Þetta snýst um heimildir og verkfæri sem maður hefur.)