um fundarstjórn.
Herra forseti. Þessi hrakfallasaga um sölu á þessum hlut í Íslandsbanka, sem er líklega ekki öll komin í ljós, varpar huga fólks aftur til hrunáranna. Þannig er það. Þar biðum við ekki bara efnahagslegt gjaldþrot heldur líka siðferðilegt. Það svíður. Það er sár sem við eigum eftir að græða. Núna stendur valið á milli þess að fara hefðbundna leið Ríkisendurskoðunar, sem mun skoða hin lagalegu álitamál, eða fara að vilja þeirra sem vilja fá hin ýtrustu tæki sem við höfum, rannsóknarnefnd sem mun hafa ríkari rannsóknarheimildir, sterkari tæki og mun skoða stóru myndina, lagalegu, efnahagslegu og siðferðilegu málin. Þetta er það sem við þurfum að skoða. Þetta er ábyrgð okkar. Við veittum ráðherra heimild til sölunnar. (Forseti hringir.) Við þurfum að gera allt sem við getum til að komast að því hvernig hann fór með það vald sem við veittum honum.