152. löggjafarþing — 65. fundur,  8. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[11:56]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Það er nú þegar búið að minna hv. þm. Óla Björn Kárason á hvernig hann studdi rannsóknarnefnd Alþingis. Mig langar bara að rifja upp að ég sagði hér í þessum ræðustól að það væri ekki nóg, að það var ekki fullnægjandi að Ríkisendurskoðun færi í þessa rannsókn. Réttara væri að við færum af stað með rannsóknarnefnd Alþingis. Undir þetta tók hv. þm. Orri Páll Jóhannsson og sagði, með leyfi forseta:

„Ef hugmynd hæstv. ráðherra um skoðun Ríkisendurskoðunar á þessu máli er ekki nóg þá tek ég heils hugar undir með þeirri hugmynd að setja á fót sérstaka rannsókn í málinu, bara heils hugar.“ — Og svo endurtók hann stuðning sinn. Þetta gerði fulltrúi Framsóknar líka.

Mig langar líka að rifja upp það sem ég sagði vegna þess að ég átti einmitt erfitt með að trúa þessu. Ég trúði því ekki að þau væru í alvörunni til í eitthvert eftirlit með sjálfum sér. Ég sagði:

„Ég vil líka, í ljósi fyrri reynslu af því að reyna að koma á rannsóknarnefnd […] vara við og segja að allur dráttur á framgangi skipunar nefndarinnar verður lesinn sem viljandi tafir gagnvart því að rannsóknin fari fram. Litið verður á allt tal um formalíska þætti, og ég veit ekki hvað og hvað sem ég hef upplifað við að reyna að koma á fót rannsóknarnefnd […] sem fyrirslátt til að koma í veg fyrir rannsókn. Ég fagna þeim samhug sem ég heyri en ég þarf að sjá verkin tala áðan og ég trúi honum í alvörunni.“ (Forseti hringir.)

Mér þykir leitt (Forseti hringir.) að hafa verið sannspá.