um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Hvers vegna ætli formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar hafi hér áðan vitnað til 20 ára gamals máls þar sem Ríkisendurskoðun lagði blessun sína yfir sölu banka? Það er vegna þess að málið varpar ljósi á að það er himinn og haf á milli Ríkisendurskoðunar og rannsóknarnefnda á vegum Alþingis. Það er himinn og haf á milli þeirra rannsóknarheimilda sem eru til staðar þegar Ríkisendurskoðun skoðar mál og þegar rannsóknarnefndir Alþingis skoða mál. Það er ótrúlegt að heyra hérna þingflokksformann Vinstri grænna vera að reyna að mála þetta upp sem einhverja vantraustsyfirlýsingu á Ríkisendurskoðun. Og þetta kemur frá sama stjórnarmeirihluta og leikur sér að því að beita starfsmannalögum með ólögmætum og fráleitum hætti til að „sjanghæja“ ríkisendurskoðanda frá löggjafarvaldinu og yfir til framkvæmdarvaldsins með þeim afleiðingum að núna er enginn ríkisendurskoðandi að störfum sem hefur verið kosinn af Alþingi. Hvenær á að kjósa hann? Hvenær á að kjósa hann? (Gripið fram í.) Hvaða vitleysa er þetta? Í gær sagði Orri Páll Jóhannsson, hv. þm. Vinstri grænna mjög skýrt: (Forseti hringir.) Ef hugmynd — ef hugmynd — hæstv. ráðherra um skoðun Ríkisendurskoðunar á þessu máli er ekki nóg þá tek ég heils hugar undir með þeirri hugmynd að setja á fót sérstaka rannsókn í málinu. Hv. þm. Jóhann Friðrik Friðriksson (Forseti hringir.) sagði það sama. Núna eru þeir búnir að éta þetta ofan í sig. Bera þeir enga virðingu fyrir sjálfum sér? (Forseti hringir.) Bera þeir enga virðingu fyrir Alþingi? Er hæstv. fjármálaráðherra með þessa menn í beisli? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)