um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Í framhaldi af orðum síðasta ræðumanns þá kom mér í hug að já, miðað við orðin sem féllu hér í gær af hálfu þingflokksformanna stjórnarflokkanna þá hefur það gerst í millitíðinni að þeir ráku réttirnar í fyrsta og annan flokk. Það er þannig sem þetta gerðist í millitíðinni af hálfu forystu fólksins í ríkisstjórnarsamstarfinu. Þetta snýst um það að byggja upp traust, skapa traust og það er ekki að ástæðulausu sem við erum að kalla þetta fram. Það er ekki að ástæðulausu að við erum að segja: Komið þið með okkur, styðjið okkur í að fá rannsóknarnefnd í þinginu af því að hún hefur ríkari heimildir, víðtækari heimildir til að byggja upp traustið sem við þurfum svo sárlega á að halda, til að byggja upp traust á Alþingi, til þess að byggja upp traust á banka- og fjármálasýslu. Fyrir okkur sem viljum taka næstu skref í því að losa um eignarhlut ríkisins á bönkunum er þetta lykilatriði. (Forseti hringir.) Þannig að ég hvet hv. þingmenn í meiri hlutanum til að koma með okkur. (Forseti hringir.) Leyfið þið í þinginu að fá þessi tæki. Ekki láta reka ykkur í réttirnar og múlbinda (Forseti hringir.) ykkur sjálf í þessu máli.